Gott val hefur haft það að leiðarljósi frá upphafi að námskeiðin séu ekki aðeins fræðandi og gagnleg heldur séu þau umfram allt skemmtileg og auðskilin. Flókin hugtök og tækniorð eru útskýrð á mannamáli það er ávallt léttur andi í húsinu. Við erum sífellt reiðubúnir að aðstoða og leiðbeina við val á námskeiðum og aðstoða á allan þann hátt sem við getum.
Allir þekkja mikilvægi góðrar þekkingar og símenntunar. Í nútíma samfélagi eru sífellt gerðar auknar kröfur um gæði þjónustu, söluferla og hæfni í samskiptum. Leiðtogar og stjórnendur nútímans verða að vera vel máli farnir, búa yfir mikilli samskiptahæfni og geta kynnt á kraftmikinn hátt sínar skoðanir og stefnur fyrir starfsmönnum og stjórn. Gott val hefur sérhæft sig í að þjálfa þessa mikilvægu þætti hjá fólki. Góð og hagnýt þekking er lykillinn að velgengni í starfi.
Það er ekki síður mikilvægt að þroska og bæta sjálfan sig utan vinnu og því bjóðum við uppá nokkur bráðskemmtileg einstaklingsnámskeið. Mikilvægi þess að trúa á sjálfan og hafa gott sjálfstraust ásamt leikni í mannlegum samskiptum eru mikilvægir þættir í því efla sjálfan sig til árangurs. Í nútíma neyslusamfélagi skiptir persónulegur fjárhagur hvers og eins sífellt meira máli og því miður hefur íslenskt skólakerfi ekki enn kennt þetta mikilvæga fag. Hæfni í öllum þessum þáttum er hægt að öðlast á námskeiði hjá Góðu vali.
|






