Ágúst - 2010
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 1 2 3 4
<
>


Umsagnir ánægðra viðskiptavina

Gott Val er einfaldlega besta valið !!
 
Ég gef starfsfólki hjá Góðu vali mína hæstu einkunn fyrir frábær vinnubrögð og afbragðs fagmennsku. Ég fór með starfsfólk mitt á námskeið hjá Góðu vali og hefur það skilað sér vel til starfsmanna minna því árangurinn hefur aukist til muna hjá hverjum og einum, auk þess sem áhugi starfsfólks míns á því sem það gerir hefur aukist vegna þess að nú vita þau hvernig
best sé að haga sér við öll þau tilfelli sem hafa komið upp. 
Ég mæli hiklaust með námskeiðum hjá Góðu vali því sjálfstraust mitt og starfsmanna minna er í háum hæðum.

Ágúst Karl Ágústsson

Framkvæmdastjóri
Sivana Auglýsingastofu
www.sivana.is



Gott veganesti frá Góðu vali
 
Við hjá Mentis vorum mjög ánægð með sölunámskeiðið hjá Góðu vali. Á námskeiðinu er farið á mjög einfaldan og skemmtilegan hátt yfir það hvernig við getum gert söluferlið hjá okkur skilvirkara og markmiðadrifnara. Við lærðum heilmikið um hvað fólk er mismunandi í hugsun og hegðun og notum nú aðferðir sem gerir okkur kleift að ná til ólíkra hópa. 

Það er ekki nokkur vafi að við erum hæfari í sölu eftir námskeiðið og skiljum enn betur en áður hversu mikilvægt það er að hafa þarfir viðskiptavina okkar að leiðarljósi. Við fengum mikið og gott veganesti hjá Góðu vali til að nota í söluverkefni hjá okkur og áhugi starfsfólks míns á sölumálum hefur aukist til muna.

Ragnheiður H. Magnúsdóttir
Framkvæmdastjóri
Mentis Software

www.mentis.is


 

Gott val fær fimm stjörnur *****



Við hjá Allra Átta leituðum til Gott Val ehf með þjálfun starfsmanna, bæði fyrir sölumenn okkar og framkvæmdastjóra. Í fáum orðum sagt þá erum við, ég og sölumenn okkar, hæst ánægðir og ég gef Gott Val fimm stjörnur *****

Árangurinn hefur strax látið á sér bera og gerði það í fyrstu viku þjálfunar. Sölumenn allt að tvöfölduðu söluárangur sinn á sama tíma og þeir veittu betri þjónustu til okkar viðskiptavina, sem sagt allir hæst ánægðir.

Ég sem framkvæmdastjóri Allra Átta fékk einnig persónulega (einkatíma) þjálfun, þekkt sem "Coaching" á ensku og ég get ekki hugsað mér að hætta að nýta mér þá sérfræði þekkingu sem í dag er búið að marg, marg borga sig.

Ég er þeirrar skoðunar að hafði ég ekki ákveðið að ganga til samstarfs við Gott val hefði ég tapað peningum, en í dag erum við hjá Allra Átta að tvöfalda veltu milli ára og ég finn strax árangurinn og þakka honum að stórum hluta starfsmanna Gott val!


Takk fyrir okkur.
Jón Trausti Snorrason,
Framkvæmdastjóri
Allra Átta ehf
www.8.is

 

 Yfirnáttúrulegir hæfileikar á sviði sölu og ræðumennsku


Gott val starfsfólkið hefur sem næst því yfirnáttúrulega hæfileika á sviði sölu- og ræðumennsku. Hópurinn okkar komst í 8-liða úrlsit í frumkvöðlakeppni Innovits þar sem úrslitin réðust á 7 mínútna kynningu. Við gerðum kynninguna í samstarfi við Gott val og við efumst ekki um áhrifin sem sú þjálfun hafði. Tryggvi í Góðu vali er sem vél sem dælir út úr sér smurðum texta á ógnarhraða. Gott val fær öll töffarastigin í bókinni minni.


Við náðum öðru sæti og átti Gott val sérstaklega stóran þátt í því, takk fyrir okkur.

Gunnar Hólmsteinn
Framkvæmdastjóri
CLARA

www.clara.is

 

 

Himinlifandi með námskeið hjá Góðu vali


Ég var himinlifandi með sölunámskeiðið hjá Góðu vali. Við í ECCO búðinni á laugaveginum erum öll mjög ánægð með hvernig námskeiðið hefur hjálpað okkur í starfi.

Við fórum á mjög gott sölunámskeið hjá Góðu vali. Það sem við lærðum gerði starfsfólkið öruggara og ánægðara í starfi og skilaði sér strax í miklu betri sölu og þjónustu. Gott val á hrós skilið fyrir fræðandi, hnitmiðað og skemmtilegt námskeið.


Ég mæli hiklaust með Góðu vali og vil koma þakklæti mínu til þeirra fyrir mikla fagmennsku.

 Kjartan Bragi Bjarnason
Verslunarstjóri
Ecco Laugavegi

www.ecco.com

föstudagur 10 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Gott val og...
Gott val tók nýverið að sér að leiðbeina í...
Viðskiptasmiðja...
Gott val tekur þátt í því að leiðbeina nemendum í...
Gott val og...
Gott val er einn af þeim aðilum sem styrkja og taka þátt í...