September - 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>



Sérsniðið námskeið fyrir þitt fyrirtæki

Til að sölunámskeiðið okkar henti þínu fyrirtæki sem best þá þarfa- og þekkingargreinum við starfsmennina þína. Þetta gerum við með því að láta þá fylla út spurningarlista sem tengjast sölumennsku, samskiptatækni, hlustun, skipulagningu, vöruþekkingu og fleiru.

Þú getur svo valið hversu langt og ítarlegt námskeið þú vilt t.d. eitt kvöldnámskeið í fyrirlestarformi eða ítarlegt þriggja kvölda námskeið með sérstakri áherslu á 6 þrepa sölu og líkamstjáningu. Einnig er hægt að fá (án þarfagreiningar) tiltölulega staðlað sölunámskeið, eitthvað sem hentar öllum.


Hér eru nokkur dæmi um það sem er að finna á námskeiðunum

Seldu í dag; áhrifarík sala, söluferlar og grunnþekking
Hér er farið í helstu grunnþætti sölumennsku eins og verðmætaukningu sölunnar, skapgerðareinkenni góðra sölumanna, söluferla í viðskiptaumhverfi, vörur og gæði í samkeppni og þekking á viðskiptavininum - allt mjög mikilvæg atriði fyrir byrjendur og þá sem ekki hafa starfað lengi sem sölumenn og/eða vilja rifja upp grunninn.

Einbeittur hugur sölumannsins
Þessi hluti námskeiðs er mjög mikilvægur öllum sölumönnum. Þetta gefur nýjum sölumönnum gríðarlega gott verkfæri til að hefast handa með og þetta hjálpar reyndum sölumönnum að ná meiri árangri í núverandi umhverfi.

Forgagnsröðun og samskipti
Í þessum hluta er farið í gegnum gríðarlega mikilvægan þátt sölumennsku; samskipti.
Þegar kljást á við óþolinmóðan kúnna sem býr yfir góðri þekkingu á þínu fyrirtæki og vörum samkeppnisaðilans, þarf sölumaðurinn ekki einungis að takast á við verkefnið (þ.e. veita kúnnanum upplýsingar, gera tillögur, verðtilboð o.s.frv.) heldur þarf hann líka að skilja hvers konar samkipti og tengsl kúnninn þarfnast og býst hreinlega við.

Skipulag og tímastjórnun, áhrifarík tilboð, tengslanet, áhrifaríkar kynningar, kauphiti, líkamslestur, markvissar opnanir, lokunartækni og margt, margt fleira...

 

Hringdu í síma 660 6945 eða sendu okkur tölvupóst og fáðu nánari upplýsingar

föstudagur 10 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Gott val og...
Gott val tók nýverið að sér að leiðbeina í...
Viðskiptasmiðja...
Gott val tekur þátt í því að leiðbeina nemendum í...
Gott val og...
Gott val er einn af þeim aðilum sem styrkja og taka þátt í...