
Hversu góða þjónustu veitir þitt fyrirtæki
Í íslensku samfélagi eru kröfur um betri og skilvirkari þjónustu sífellt að aukast. Hver kannast ekki við að hafa “rekið” fyrirtæki, þ.e. sagt upp viðskiptum við það og ákveðið að snúa sér annað. Þetta er eitthvað sem við þekkjum flest.
Því miður eru allt of fá fyrirtæki tilbúin að rýna djúpt og heiðarlega innávið og mæla gæði
þeirrar þjónustu sem þau veita. Á þjónustunámskeiðunum okkar förum við yfir alla þá þætti sem skipta máli í hvers kyns þjónustu við viðskiptavini og hægt er að fá sérstaka útgáfu af námskeiðinu fyrir þau fyrirtæki sem eru með stór þjónustuver og/eða sérhæfa sig í símsölu.
Við sníðum vitanlega námskeiðið að þörfum þíns fyrirtækis.
Þú velur einfaldlega hversu langt og ítarlegt námskeið þú vilt. Allt frá einu kvöldnámskeiði í fyrirlestarformi yfir í ítarlegt margra kvölda námskeið með sérstakri áherslu á erfiða viðskiptavini og þjónustu yfir netið. Einnig er hægt að flétta saman sölumennsku og þjónustu.
Hér eru nokkur dæmi um það sem er að finna á námskeiðunum
Grunnur góðrar þjónustu
Hér er farið í mörg atriði sem gott er að minna á, t.d. mikilvægi fyrstu kynna, kurteisi og viðhorf,
siðferði, heiðarleika og hvernig við byggjum upp traust.
Þekking og skilningur á viðskiptavininum
Í þessum hluta er farið ítarlega í gegnum virka hlustun og spurningatækni. Lærum að spyrja áhrifaríkra spurninga og það hvernig við greinum þarfir viðskiptavinarins. Ræðum kraftmiklar opnanir og hvernig við getum beitt markvissri málnotkun.
Erfiðir viðskiptavinir og mótbárur
Það hafa allir lent í því að fá yfir sig öskureiðan viðskiptavin og því miður bregðumst við oft rangt við. En nú er hægt að læra hvernig við bregðums rétt við og breytum óánægðum kúnna í sáttan og jafnvel hamingjusaman viðskiptavin.
Tölvupóstsamskipti, þjónusta yfir netið, símsvörun, brostin loforð og margt, margt fleira...
Hringdu í síma 660 6945 eða sendu okkur tölvupóst og fáðu nánari upplýsingar