September - 2010
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>



Góð samskiptatækni er lykillinn að árangri

Í þúsundir ára hefur mannkynið notað samræðulistina til að ná saman, kasta á milli sín hugmyndun, þróa sambönd, styrkja vinabönd og þar fram eftir götunum. Góð samskiptatækni hefur áhrif á andrúmsloft vinnustaða, líðan þeirra sem vinna náið saman, mótar kúltúr í fyrirtækjum og síðast en ekki síst hefur samskiptatækni áhrif á fjármál fyrirtækja.

Daglega stöndum við frammi fyrir aðstæðum sem geta versnað
eða batnað allt eftir því hvernig við höldum á spilunum. Skýr, markviss og góð samskiptatækni ýtir undir heiðarleika og opið umhverfi,  styður jákvæða framþróun verkefna og starfsferla og bætir samstarfsvilja. Slæm samkiptatækni getur á hinn boginn rifið niður “móralinn” á vinnustöðum, eykur líkur á mistökum og misskilningi auk þess sem dýrmæt þekking vill gjarnan tapast úr fyrirtækinu.


Hér eru nokkur dæmi um það sem er að finna á námskeiðunum

Gagnlegir ísbrjótar
Ein algengasta afsökun fólks sem heldur samskiptum í lágmarki er: “en ég veit ekkert hvað ég á að segja!” Nú dugar sú afsökun ekki lengur því við kennum fjölda leiða til að brjóta ísinn og koma af stað samræðum.

Stattu upp og talaðu
Flestir þekkja óttan sem fylgir því að þurfa að standa upp fyrir framan hóp af  fólki og tala, t.d. halda kynningu, ræðu eða bara til að koma skoðunum á framfæri. Við veitum markvissa þjálfun í því að tala fyrir framan hóp, sýnum hvernig við losum okkur undan streitunni og hvernig við fáum fólk til að leggja við hlustir þegar við stöndum upp og tölum. 

Samingaviðræður og máttur sannfæringar
Alla daga beitum við sannfæringarmætti og erum að semja, hvort sem við gerum okkur grein fyrir því eða ekki. Lærðu áhrifaríka samningatækni og ýmsar leiðir til að auka mátt sannfæringarinnar. Þessi tækni nýtist þegar þú þarft að fá fólk á þitt band, fá tillögu samþykkta hjá yfirmönnum, samstarfsfólki eða viðskiptavinum. Auktu sjálfstraustið og þú munt ná lengra!

Virk hlustun, líkamstjáning, hlustaðu með augunum, skammir-tiltal og margt, margt fleira...

 

 

Hringdu í síma 660 6945 eða sendu okkur tölvupóst og fáðu nánari upplýsingar

mánudagur 6 september 09 2010
Nýjustu fréttir
Gott val og...
Gott val tók nýverið að sér að leiðbeina í...
Viðskiptasmiðja...
Gott val tekur þátt í því að leiðbeina nemendum í...
Gott val og...
Gott val er einn af þeim aðilum sem styrkja og taka þátt í...